Nýtt hjúkrunarheimili í Hornafirði - Hönnunarsamkeppni (примерный перевод: Новый дом престарелых в Хорнафьордюре - конкурс дизайна) (Исландия - Тендер #4602435) | ||
| ||
Для перевода текста тендера на нужный язык воспользуйтесь приложением: | ||
Страна: Исландия (другие тендеры и закупки Исландия) Организатор тендера: Ríkiskaup Номер конкурса: 4602435 Дата публикации: 19-02-2019 Источник тендера: Ríkiskaup |
||
Framkvæmdasýsla ríkisins f.h. heilbrigðisráðuneytisins og Sveitarfélagsins Hornafjarðar býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um nýbyggingu hjúkrunarheimilis á Höfn í Hornafirði, nánar tiltekið á lóðinni nr. 29 við Víkurbraut.
Um er að ræða 30 rýma hjúkrunarheimili, en hluti þess eru endurbætur á núverandi hjúkrunarheimili, Skjólgarði, sem nýbyggingin mun tengjast.
Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 15. mars 2019 en því síðara 8. apríl 2019. Vakin er athygli á því að þessi samkeppni er rafræn, gögn eru afhent og þeim skilað rafrænt til Ríkiskaupa, samkvæmt leiðbeiningum á heimasíðu Ríkiskaupa og í Samkeppnislýsingu. Skilafrestur tillagna er 30. apríl 2019.
Veitt verða þrenn verðlaun að heildarupphæð 8 milljónir kr. og þar af verða fyrstu verðlaun að lágmarki 4 m.kr.
Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES.
Nánari upplýsingar er að finna á heimsíðu Ríkiskaupa ( ) en þar eru leiðbeiningar til að skrá sig til
þátttöku og nálgast samkeppnislýsingu og önnur ítargögn undir nafnleynd. Gögnin eru á útboðsvefnum TendSign ,
útboðsnúmer 20908 frá og með þriðjudeginum 19. febrúar 2019.