20864 – Geðheilsuteymi HH austur – Leiguhúsnæði (примерный перевод: 20864 и # 8211; Группа по психическому здоровью HH east and # 8211; Аренда жилья) (Исландия - Тендер #4156867) | ||
| ||
Для перевода текста тендера на нужный язык воспользуйтесь приложением: | ||
Страна: Исландия (другие тендеры и закупки Исландия) Организатор тендера: Útboðsvefur Номер конкурса: 4156867 Дата публикации: 12-11-2018 Источник тендера: Útboðsvefur |
||
Númer: | 20864 |
Útboðsaðili: | Ríkiskaup |
Tegund: | Þjónusta |
Útboðsgögn afhent: | 05.11.2018 kl. 00:00 |
Skilafrestur | 22.11.2018 kl. 13:00 |
Opnun tilboða: | 22.11.2018 kl. 13:00 |
Ríkiskaup f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði fyrir Geðheilsuteymi HH austur. Umsjónaraðili er Framkvæmdasýsla ríkisins.
Miðað er við að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til 8 ára, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um góða staðsetningu, gott aðgengi þ.m.t. fyrir
hreyfihamlaða, hjólandi og gangandi og næg bílastæði. Geðheilsuteymi austur er þjónustustofnun fyrir almenning. Geðheilsuteymið er 2. stigs geðheilbrigðisþjónusta á vegum
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Lykilþættir í starfsemi teymisins eru að það sé þverfaglegt og í nærumhverfi notenda. Því skiptir staðsetning húsnæðisins þ.e. miðlægt
í þjónustusvæði, í nálægð við helstu stofnbrautir og almenningssamgöngur, miklu máli við staðarval. Teymið sinnir íbúum í eftirfarandi póstnúmerum; 109 Breiðholt, 110
Árbær, 111 Breiðholt, 112 Grafarvogur, 113 Grafarholt og 116 Kjalarnes (ásamt Reykjavík dreifbýli). Seinna mun Mosfellsbær bætast við með 270 Mosfellsbær og 271 Mosfellsbær
dreifbýli.
Húsrýmisþörf stofnunarinnar er áætluð um 422 fermetrar. Húsnæðið er þjónustuhúsnæði fyrir geðheilbrigðisþjónustu. Æskilegast er að það sé á einni hæð.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á heimasíðu Ríkiskaupa
Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærð húss og skipulags þess út frá fyrirhugaðri starfsemi, öryggi, afhendingatíma, staðsetningu, aðkomu
og bílastæðum.
Fyrirspurnir varðandi verkefni Geðheilsuteymi HH austur skulu sendar á netfangið www.utbod@rikiskaup.is (Opnast í nýjum vafraglugga) og verða svör birt á vef Ríkiskaupa.
Fyrirspurnarfrestur rennur út 15. nóvember 2018 en svarfrestur er til og með 19. nóvember 2018.
Leigutilboðum þar sem fram kemur stærð, ástand og staðsetning húsnæðis, ásamt leiguverði, skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, eigi síðar en kl. 13:00
fimmtudaginn 22. nóvember 2018.
Merkja skal tilboðin; nr. 20864 – Geðheilsuteymi HH austur – Leiguhúsnæði.
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup, nr. 120/2016, sbr. a-lið 1. mgr. 11. gr.
Gögn sem fylgja skulu tilboði þurfa m.a. að innihalda eftirfarandi upplýsingar:
• Afhendingartíma húsnæðis
• Staðsetningu, stærð og aldur húsnæðis og tillöguteikningar
• Fjölda bílastæða, aðkomu að lóð og byggingu,
• Leiguverð per/m2 og heildarleiguverð
• Húsgjöld
• Gildandi deiliskipulag svæðis þ.e. lóðar og aðlægra lóða
• Tilvísun í gildandi aðalskipulag
• Úttektarskýrsla á viðurkenndum myglumælingum frá óháðum aðila
ATH. Ekki verður haldinn opnunarfundur heldur er tekið við tilboðum hjá Ríkiskaupum eigi síðar en kl. 13:00 fimmtudaginn 22. nóvember 2018.