Heilsugæslustöðin Reyðarfirði - Viðbygging (примерный перевод: Клиника Рейдарфьордур - Приложение) (Исландия - Тендер #3937191) | ||
| ||
Для перевода текста тендера на нужный язык воспользуйтесь приложением: | ||
Страна: Исландия (другие тендеры и закупки Исландия) Организатор тендера: Ríkiskaup Номер конкурса: 3937191 Дата публикации: 28-09-2018 Источник тендера: Ríkiskaup |
||
Heilsugæslustöð á Reyðarfirði – stækkun - Heilbrigðisstofnun Austurlands
ÚTBOÐ NR. 20820
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. velferðarráðuneytisins, óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við að byggja viðbyggingu við núverandi Heilsugæslustöð á Reyðarfirði að Búðareyri 8 á Reyðarfirði. Heilsugæslustöðin er hluti Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Viðbyggingin er 276 m2 timburhús á steyptum sökkli.
Viðbyggingin samanstendur af tengibyggingu, aðalbyggingu og yfirbyggðri aðkomu sjúkrabíla. Í tengibyggingu er nýr inngangur, biðstofa og móttaka, í aðalbyggingu er bætt aðstaða heilsugæslu og skrifstofa og við enda hússins er yfirbyggð aðkoma sjúkrabíla og sorpgeymsla. Veggir eru klæddir utan með sléttum trefjaplötum, gluggar og hurðir úr timbri með framhlið úr áli. Þak borið uppi af kraftsperrum og láréttum ásum, klætt með bárustáli. Innveggir úr blikkstoðum klæddum gifsi, loft gifsklætt og dúkur og flísar á gólfum.
Helstu magntölur eru:
Mótafletir (Sökkulmót) |
130 m² |
Steinsteypa |
75 m³ |
Þakflötur |
310 m² |
Klæðning útveggja |
126 m² |
Klæðning og léttir innveggir |
215 m² |
Loftaklæðningar |
220 m² |
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 1. nóvember 2019.
Útboðsgögn eru aðgengileg á vef Ríkiskaupa
Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum 16.10.2018 kl. 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.