Landspítali - skrifstofuhúsnæði óskast (примерный перевод: Больница - офис Wanted) (Исландия - Тендер #3435735) | ||
| ||
Для перевода текста тендера на нужный язык воспользуйтесь приложением: | ||
Страна: Исландия (другие тендеры и закупки Исландия) Организатор тендера: Ríkiskaup Номер конкурса: 3435735 Дата публикации: 14-06-2018 Источник тендера: Ríkiskaup |
||
Ríkiskaup f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði á höfuð-borgarsvæðinu fyrir skrifstofur Landspítala. Umsjónaraðili er Framkvæmdasýsla ríkisins.
Miðað er við að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til 15 ára, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um ákveðna staðsetningu á höfuðborgarsvæðinu,
gott aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi og gangandi og næg bílastæði. Skrifstofur Landspítala eru þjónustustofnun fyrir almenning og þjóna starfsstöðum Landspítala
því skiptir staðsetning húsnæðisins, þ.e. nálægð við helstu stofnbrautir og almenningssamgöngur, miklu máli við staðarval. Nálægð við aðalstarfsstöðvar Landspítala við
Hringbraut og í Fossvogi er mikilvæg og því er gerð krafa um að húsnæðið sé í ákveðnum póstnúmerum (101 austan Suðurgötu,103,105 og 108).
Húsrýmisþörf er áætluð um 4.932 fermetrar. Húsnæðið er hefðbundið skrifstofu- og þjónustuhúsnæði.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á heimasíðu Ríkiskaupa þriðjudaginn, 5. júní 2018.
Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærð húss og skipulags þess út frá fyrirhugaðri starfsemi, öryggis, afhendingatíma, staðsetningu, aðkomu
og bílastæðum.
Fyrirspurnir varðandi verkefni 20788 skulu sendar á netfangið og verða svör birt á vef Ríkiskaupa.
Fyrirspurnarfrestur rennur út miðvikudaginn 20. júní en svarfrestur er til og með 25. júní 2018.
Leigutilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, eigi síðar en kl. 15:00 fimmtudaginn 28. júní 2018.
Merkja skal tilboðin; nr. 20788 – Landspítali - Leiguhúsnæði.
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 20/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 6a. gr.
Gögn sem fylgja skulu tilboði þurfa m.a. að innihalda eftirfarandi upplýsingar:
• Afhendingartíma húsnæðis
• Staðsetningu, stærð og aldur húsnæðis og tillöguteikningar
• Fjölda bílastæða, aðkomu að lóð og byggingu
• Leiguverð per/m2 og heildarleiguverð
• Húsgjöld
• Gildandi deiliskipulag svæðis þ.e. lóðar og aðlægra lóða
• Tilvísun í gildandi aðalskipulag
• Áskilinn er réttur til að óska eftir því við leigusala að hann leggi fram úttektarskýrslu, frá óháðum aðila, um að húsnæðið sé laust við myglu. Það skal gert áður
en skrifað er undir leigusamning.
ATH. Ekki verður haldinn opnunarfundur heldur tilboðum skilað inn í afgreiðslu Ríkiskaupa fyrir kl. 15:00, 28. júní 2018.
Aukaskjöl Titill