LSH Landakot þak K-álmu (примерный перевод: LSH Landakot крыша крыло-К) (Исландия - Тендер #3102988) | ||
| ||
Для перевода текста тендера на нужный язык воспользуйтесь приложением: | ||
Страна: Исландия (другие тендеры и закупки Исландия) Организатор тендера: Ríkiskaup Номер конкурса: 3102988 Дата публикации: 05-04-2018 Источник тендера: Ríkiskaup |
||
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Landspítala, óskar eftir tilboðum í verkið: LSH Landakot - þak K-álmu.
Verkið felst í endurnýjun þaks K-álmu og múrviðgerða aðliggjandi turns. Núverandi rishæð og þakfrágangur eru rifin en haldið er í þaksperrur sem eru heflaðar eftir þörfum. Endurnýjun nær til þakklæðningar og kvista en ekki skorsteina og þakglugga. Frágangur verður bættur m.t.t. loftunar þaks og þykkt einangrunar. Zinkklæðning kemur í staðinn fyrir núverandi steinskífuklæðningu.
Helstu magntölur eru:
Rif og förgun á innveggjum | 500 m2 |
Rif og förgun á gólfefni | 380 m2 |
Rif núverandi þakklæðningar | 730 m2 |
Heflun þakvirkis | 350 m |
Nýr þakfrágangur með zinkklæðningu | 730 m2 |
Steining á turnbyggingu | 95 m2 |
Boðið er til kynningarfundar og vettvangsskoðunar á verkstað við Landakotsspítala, mæting fyrir framan suðurhliðar K-álmu, mánudaginn 16. apríl nk. kl. 14:00 að viðstöddum fulltrúa verkkaupa.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 15. október 2018.
Sjá nánari upplýsingar í útboðsgögnum