Доступ к полной информации по данной закупке закрыт. Зарегистрируйтесь для получения бесплатных рассылок по новым тендерам и просмотра дополнительной информации. .
Регистрация
20719 - ÁTVR - leiguhúsnæði óskast á Skeifusvæðinu
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins óskar eftir að taka á leigu um 600-800 m² húsnæði fyrir Vínbúð á Skeifusvæðinu í Reykjavík. Svæðið afmarkast af Skeiðarvogi, Miklubraut,
Grensásvegi og Suðurlandsbraut. Húsnæðið mun skiptast að u.þ.b. 2/3 hlutum í verslunarsvæði og 1/3 hluta í lager og starfsmannaaðstöðu.
Húsnæðið þarf að fullnægja eftirfarandi kröfum:
Vera á skilgreindu verslunarsvæði.
Liggi vel við almenningssamgöngum
Umferð að og frá húsnæðinu sé greið.
Húsnæðið skal vera á jarðhæð.
Húsnæði bjóði upp á að vöruhurð opnist beint út á bak- eða hliðarsvæði.
Góð aðkoma sé að húsnæðinu fyrir viðskiptavini og næg bílastæði (a.m.k.30-50 bílastæði sem eru ætluð Vínbúðinni eða sérmerkt Vínbúðinni).
Lögð er áhersla á gott aðgengi af bílaplani fyrir hreyfihamlaða og jafnframt þurfa að vera bílastæði fyrir starfsfólk.
Aðkoma að húsnæðinu fyrir flutningabíla og/eða lyftara með vörur skal vera góð.
Verslunarrýmið sé sem næst rétthyrnt (hlutföll rýmisins nálægt 3 á móti 2) og mega súlur, veggir eða annað ekki hamla yfirsýn um verslunarhluta húsnæðisins.
Hljóðdempun í verslun skal tryggja góða hljóðvist og birtulýsing skal vera 500-600 lux (fer eftir ástandi við skil).
Húsnæðið verður að fullnægja öllum kröfum sem opinberar eftirlitsstofnanir og umsagnaraðilar gera til slíks og vera samþykkt af þeim.
Leigutími húsnæðisins er 8-10 ár.
Húsnæðið skal afhenda samkvæmt samkomulagi og ræðst afhendingartími nánar af ástandi þess við afhendingu.
Áhugasamir skulu senda öll gögn um það húsnæði sem þeir hyggjast bjóða í lokuðu umslagi til skrifstofu Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík fyrir kl. 11:00, fimmtudaginn 8.
mars 2018
Merkt : 20719 - Leiga á húsnæði fyrir Vínbúð ÁTVR á Skeifusvæðinu
Gögn þurfa meðal annars að innihalda eftirfarandi:
Staðsetning.
Teikningar af húsnæði.
Mögulegur afhendingartími.
Ástand húsnæðis við afhendingu.
Leiguverð án vsk. og skal það innifela allan kostnað.
Fyrirsjáanlegar breytingar sem gætu haft áhrif á kröfuliði 1- 11 að ofan á leigutímanum.
Kvaðir sem kunna að hafa áhrif á starfsemi Vínbúðar á svæðinu
Ath. að ekki er haldinn opnunarfundir heldur eingöngu tekið við tilboðum.
Titill
Opnunarfundur: 8.3.2018, 11:00
Staða: á tilboðstíma
Fyrirspurnarfrestur:7.3.2018
Svarfrestur: 7.3.2018
Samið við:
Источник закупки
Перейти
Импорт - Экспорт по стране Исландия
Кроме мониторинга зарубежных тендеров для ведения успешного бизнеса изучите информацию о стране: какая продукция экспортируется и импортируется и на какие суммы. Определите коды ТН ВЭД интересующей вас продукции.
Портал отображает информацию о закупках, публикуемых в сети интернет и находящихся в открытом доступе, и предназначен для юрлиц и индивидуальных предпринимателей, являющихся участниками размещения государственного и коммерческого заказа.
Сайт использует Cookie, которые нужны для авторизации пользователя. На сайте стоят счетчики Яндекс.Метрика, Google Analytics и LiveInternet, которые нужны для статистики посещения ресурса.