TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS - LEIGUHÚSNÆÐI ÓSKAST (примерный перевод: SSI - арендовали Oskar) (Исландия - Тендер #2750007) | ||
| ||
Для перевода текста тендера на нужный язык воспользуйтесь приложением: | ||
Страна: Исландия (другие тендеры и закупки Исландия) Организатор тендера: Ríkiskaup Номер конкурса: 2750007 Дата публикации: 25-01-2018 Источник тендера: Ríkiskaup |
||
Ríkiskaup f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði á höfuð-borgarsvæðinu fyrir Tryggingastofnun ríkisins. Umsjónaraðili er Framkvæmdasýsla
ríkisins.
Miðað er við að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til 25 ára, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um góða staðsetningu á höfuðborgarsvæðinu,
gott aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi og gangandi og næg bílastæði. Tryggingastofnun er þjónustustofnun fyrir almenning og því skiptir staðsetning stofnunar, þ.e.
nálægð við helstu stofnbrautir og almenningssamgöngur, miklu máli við staðarval.
Húsrýmisþörf stofnunarinnar er áætluð um 2.600 fermetrar. Húsnæðið er hefðbundið skrifstofu- og þjónustuhúsnæði. Miða skal við að húsnæðið geti verið allt að þrjár
hæðir.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á heimasíðu Ríkiskaupa þriðjudaginn, 30. janúar 2018.
Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærð húss og skipulags þess út frá fyrirhugaðri starfsemi, öryggis, afhendingatíma, staðsetningu, aðkomu
og bílastæðum.
Fyrirspurnir varðandi verkefni 20703 skulu sendar á netfangið og verða svör birt á vef Ríkiskaupa.
Fyrirspurnarfrestur rennur út miðvikudaginn 21. febrúar en svarfrestur er til og með 26. febrúar 2018.
Leigutilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, eigi síðar en kl. 15:00 fimmtudaginn 1. mars 2018.
Merkja skal tilboðin; nr. 20703 – Tryggingastofnun ríkisins - Leiguhúsnæði.
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 20/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 6a. gr.
Gögn sem fylgja skulu tilboði þurfa m.a. að innihalda eftirfarandi upplýsingar:
• Afhendingartíma húsnæðis
• Staðsetningu, stærð og aldur húsnæðis og tillöguteikningar
• Fjölda bílastæða, aðkomu að lóð og byggingu
• Leiguverð per/m2 og heildarleiguverð
• Húsgjöld
• Gildandi deiliskipulag svæðis þ.e. lóðar og aðlægra lóða
• Tilvísun í gildandi aðalskipulag
• Áskilinn er réttur til að óska eftir því við leigusala að hann leggi fram úttektarskýrslu, frá óháðum aðila, um að húsnæðið sé laust við myglu. Það skal gert áður
en skrifað er undir leigusamning.